Vaxtarfjármögnun fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki (SME) í alþjóðlegri sókn

Nefco býður litlum og meðalstórum fyrirtækjum fjármögnunarmöguleika til vaxtar á alþjóðlegum mörkuðum.

Fjármögnun fyrir græn norræn fyrirtæki

Nefco er alþjóðleg fjármálastofnun í norrænni ríkiseigu sem hefur fjármagnað græn fyrirtæki og umhverfisverkefni síðan 1990. Við bjóðum litlum og meðalstórum fyrirtækjum fjármögnunarmöguleika til vaxtar á alþjóðlegum mörkuðum.

Hjálpar litlum og meðalstórum íslenskum fyrirtækjum að vaxa

Fjármögnun frá Nefco aðstoðar við að laða að fjármögnun frá viðskiptabönkum og öðrum einkafjárfestum til að brúa fjármagnsbilið til uppskölunar fyrirtækja. Ef fjárfestingin hefur græn áhrif þá getur Nefco tekið fjárhagslega áhættu.

Fjármögnunarleiðir okkar

Við bjóðum lán á markaðskjörum, fjármögnun með hlutafé og fjárhagslegan stuðning fyrir hagkvæmnisathuganir vegna alþjóðavæðingar. Ef þín starfsemi er á sviði grænna lausna sem henta til uppskölunar og vaxtar á alþjóðlegum mörkuðum, kynntu þér þá frekar þær fjármögnunarleiðir sem í boði eru.

Fjárfestingar á heimsmörkuðum

Nefco veitir lán á markaðskjörum og fjármögnun hlutafjár fyrir lítil og meðalstór norræn fyrirtæki með verkefni sem útvíkka grænar lausnir á alþjóðlegum mörkuðum.

Lán og fjármögnun hlutafjár

Nopef fjármögnun

Fjárhagsstuðningur frá Nopef getur fjármagnað hagkvæmnisrannsóknir og annan viðskiptaundirbúning. Lítil og meðalstór norræn fyrirtæki geta sótt um Nopef fjármögnun vegna alþjóðavæðingarverkefna á mörkuðum utan ESB/EFTA.

Nánar um Nopef

Viðskiptavinir okkar

Við styðjum vöxt íslenskra fyrirtækja á heimsmörkuðum til að hraða grænum umskiptum. Meðal viðskipatvina okkar eru Carbon Recycling International, Klappir, DTE, Thor Ice Chilling Solutions og mörg önnur lítil og meðalstór fyrirtæki í vexti.

Lesa dæmisögur

Nefco á Íslandi

“Við höfum séð gríðarlega miklar og jákvæðar breytingar á græna fjárfestingaumhverfinu á Íslandi á síðastliðnum árum,” segir Þórhallur Þorsteinsson, framkvæmdastjóri fjárfestinga Nefco í litlum og meðalstórum fyrirtækjum á Norðurlöndum.

Lesa meira

Dæmi: Klappir

Hugbúnaður Klappa á sviði sjálfbærnistjórnunar, gerir fyrirtækjum kleift að fylgjast með umhverfis- og öðrum sjálfbærnistengdum aðgerðum sínum. Fjármögnun frá Nefco styður við alþjóðlega útrás fyrirtækisins.

Lesa meira

Heyrumst!

Thor Thorsteinsson Vice President, Green Transition Nordic SMEs
Icelandic, Swedish, English

Hafðu samband við okkur

Hefur þú áhuga á að hitta einn af fjárfestingarráðgjöfunum okkar? Vinsamlega fylltu út formið og við verðum í sambandi fljótlega.

    Með því að staðfesta áskrift að fréttabréfi staðfesti ég einnig að ég er samþykk(ur) skilmálum sem settir eru fram í persónuverndarstefnu Nefco (www.nefco.int/privacy-policy).
  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.

Subscribe to our newsletter

Our digital newsletter is being published 4-6 times a year. To stay updated on our projects and activities, sign up here.